Nú hefur her Ísraela hrakið um fjörutíu þúsund manns á flótta á Vesturbakkanum; hefur nú sent þangað skriðdreka í fyrsta sinn frá árinu 2002, eins og fram hefur komið á RÚV.
Varnarmálaráðherra Ísraels segir að herliðið verði á Vesturbakkanum út þetta ár hið minnsta.
Ísraelsher staðfesti þessar fréttir í morgun.
Aðeins nokkrum dögum eftir að vopnahlé tók gildi á Gaza hóf Ísraelsher aðgerð sem kölluð er Operation Iron Wall eða Járnveggurinn.
Segir Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, að fólkið fái ekki að fara heim – en hann hefur skipað herliði sínu að vera um kyrrt á Vesturbakkanum allavega út þetta ár.
Segja ísraelsk stjórnvöld þetta gert til þess að uppræta hryðjuverkastarfsemi.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að engum verði sleppt fyrr en Hamas-samtökin hætti athöfnum við frelsun gísla; athafnirnar séu niðurlægjandi sem og sviðsettar í áróðursskyni.
Hamas hafa sleppt 25 gíslum; alltaf við athöfn þar sem þungvopnaðir og grímuklæddir menn umkringja fólkið; láta það veifa til viðstaddra.
Hingað til hafa leiðtogar Hamas hunsað kröfu Rauða krossins um að láta gíslana lausa í kyrrþey.