Þrjú börn frusu í hel á Gaza í nótt.
Vopnahléssamkomulag Hamas og Ísraels hefur gert meira en 600.000 Palestínumönnum kleift að snúa aftur til sinna bæja og þorpa. Það sem beið þeirra var hinsvegar óbyggilegt svæði.
Blaðamaður frá Al Jazeera er staddur í borginni Khan Younis en hann segist umkringdur eyðileggingu þar sem fjölskyldur búa í leifum eyðilagðra íbúðabygginga. Segir hann ennfremur að börn búi inni í þessum byggingum án nokkurs konar nauðsynlegrar mannúðaraðstöðu, þar á meðal rafmagns, vatns og hreinlætisaðstöðu. Af þeim sökum leggja Palestínumenn áherslu á þá miklu þörf sem er á húsbílum og skýlum, sem hluti af vopnahléssamkomulaginu.
Ísraelar hafa hingað til ekki leyft nægilega mörgum hreyfanlegum skýlum og tjöldum að fara inn á Gaza-svæðið.
Fjölskyldur hafa notað bráðabirgðatjöld í meira en eitt og hálft ár og búa nú á opnum svæðum. Sérstaklega hafa börn og gamalmenni verið berskjölduð fyrir köldu vetrarveðri á Gaza.