Séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir er fallin frá en hún var 63 ára gömul. Þjóðkirkjan greinir frá þessu á heimasíðu sinni. Hulda fæddist í Reykjavík árið 1961 og voru foreldrar hennar Helgi Ólafsson og Munda Kristbjörg Guðmundsdóttir. Eftir að hafa lokið stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund fór hún í Háskóla Íslands og lauk þar cand.theol. prófi árið 1987. Sama ár var hún skipuð sóknarprestur í Hríseyjarprestakalli og starfaði þar til 2014 en þá varð hún héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi. 2018 tók hún við sem prestur Kvennakirkjunnar og starfaði þar til 2022 en hún þurfti að láta af störfum af heilsufarsástæðum. Hulda Hrönn verður jarðsungin frá Langholtskirkju í Reykjavík þann 7. mars kl. 13:00.