Valnefnd Þjóðkirkjunnar hefur valið séra Steinunni Önnu Baldvinsdóttur sem prest við Seljakirkju í Reykjavík en hún er einmitt alin upp í hverfinu og hefur starfað sem í kirkjunni í rúman áratug meðal annars sem kirkjuvörður, æskulýðsfulltrúi og æskulýðsprestur. Þá býr Steinunn sömuleiðis í hverfinu með börnum sínum tveimur. Hún lauk B.A. gráðu í guðfræði árið 2021 og mag. theol. gráðu í guðfræði árið 2024 en hún tók stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík, en þar stundaði hún nám við félagsfræðibraut. Foreldrar hennar eru Baldvin Björnsson og Kristín Grétarsdóttir. Hún mun framvegis blessa sóknarbörn Seljakirkju og herma heimildir Mannlífs að íbúar hverfisins séu mjög ánægðir með valið á henni.