Skartgripadrottningin Dorrit Moussaieff naut sín í botn í íslenskri náttúrulaug ásamt hundinum sínum Samson. Birti hún ljósmyndir og myndskeið frá dekurdeginum, á Instagram.
Fyrrverandi forsetafrúin og skartgripadrottningin Dorrit Moussaieff kann að gera vel við sig og sína en hún er afar dugleg að ferðast, bæði utanlands og innanlands og dekra við sig. Í gær birti hún ljósmyndir og myndskeið á Instagram-reikningi sínum þar sem sjá má hana njóta volgrar náttúrulaugar, ásamt öðrum ferðalöngum sem þar voru. En Samson var auðvitað ekki skilinn út undan en Dorrit gerði sér lítið fyrir og leyfði hvutta að baða sig í lauginni á meðan hún gaf honum jarðaber að borða. Þvílíkur lúxus!
Hér má sjá myndir af herlegheitunum en myndirnar tók ljósmyndarinn Yael.

Ljósmynd: Instagram-skjáskot

Ljósmynd: Instagram-skjáskot

Ljósmynd: Instagram-skjáskot