Föstudagur 28. febrúar, 2025
4.8 C
Reykjavik

Hryllingnum á Höfða lokið eftir aðgerðir MAST: „Samt gremjulegt hversu illa er staðið að þessu“ 

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Matvælastofnun hefur lokið aðgerðum á sauðfjárbúi í Borgarfirði vegna ítrekaðra brota á velferð dýra. Þá höfðu ábúendur endurtekið ekki orðið við kröfum um úrbætur með fullnægjandi hætti.

Mannlíf hefur síðustu ár fjallað ítrekað um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum Höfða í Borgarnesi en þar voru kindur á vergangi um sveitina og ær áttu lömb út undir berum himni með rándýrin sveimandi í kring, svo fátt eitt sé nefnt.

Sjá einnig: Birtir nýjar sláandi myndir af dýrunum á Höfða: „Hryllingurinn tekur sér ekki frí á hátíðisdögum“

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að stofnunin hafi gert kröfur um verulega fækkun á fé á bænum niður í 50 kindum, sem ábúendur samþykktu skriflega. Bauðst ábúendum að færa uppgefinn fjölda fjár til slátrunar innan ákveðins tímaramma. Þegar það gekk ekki eftir að fullu, greip stofnunin til aðgerða. Var lögð áhersla á að ljúka aðgerðum áður en nær liði sauðburði, sem hefst í seinnihluta aprílmánaðar. Fram kemur einnig í tilkynninguni að aðbúnaði og ummönum lambjár á bóndabænum hafi verið sérstaklega ábótavant á þeim viðkvæma tíma búfjárhaldsins.

Samkvæmt MAST gengu aðgerðirnar vel en samtals var fækkað á búin um rétt tæplega 600 fjár síðan sláturtíð lauk í fyrra haust. Þá verður eftirlit með aðbúnaði og umhirðu á því fé sem bændurnir fengu að halda eftir, viðhaft.

Steinunn Árnadóttir, hestakona og orgelleikari, sem gagnrýndi meðferðina á sauðfénu hvað mest síðustu ár, segir að aðgerðir MAST sé viss áfangi en finnst gremjulegt hvernig staðið var að því. Var hún og fleiri mjög gagnrýnin á seinagangi MAST í málinu. Bendir hún á þá staðreynd að í dag eru akkurat liðin 23 ár frá því að fyrst var ráðist í stóra aðgerð á Höfða en það var 28. febrúar 2002.

- Auglýsing -

„Þetta er viss áfangi. Það er samt gremjulegt hversu illa er staðið að þessu. Að féð hafi ekki verið fellt í haust, alla vega stærsta hlutann. Það hefur enginn sem ég hef talað við verið sáttur með þessa framkomu Mast,“ segir Steinunn í samtali við Mannlíf.

Bætir Steinunn við: „Lítill nemandi sem ég var að kenna spurði mig hvaða yrði um dýrin sem ég væri að hjálpa? Eg varð að svara: ,,þau eru öll drepin” !“ 

 

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -