Föstudagur 28. febrúar, 2025
1.8 C
Reykjavik

Karlmaður lést í vinnuslysi í Vík í Mýrdal

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alvarlegt vinnuslys varð í Vík í Mýrdal í dag, þar sem karlmaður á fimmtugsaldri lést en lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu.

Tilkynning barst um slysið klukkan 13:45 og voru viðbragðsaðilar, lögregla, sjúkraflutningamenn og læknir fljótir á staðinn. Endurlífgunartilraunir voru reyndar á vettvangi en þær báru ekki árangur.

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglustjórans á Suðurlandi.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu aö sögn lögreglu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -