Kona er látin eftir að hafa fallið fram af svölum fjölbýlishúss í Breiðholtinu.
Um hádegisbilið í dag barst lögreglu tilkynning um konu sem féll niður af svölunum í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu. Konan var á sextugsaldri en hún er nú látin. Lögreglan segir að ekki sé grunur um refsiverða háttsemi.
„Frekari upplýsingar verða ekki veittar um málið,“ segir Eiríkur Valberg hjá miðlægri deild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Samkvæmt Vísi var nokkur viðbúnaður á vettvangi og teymi sent á staðinn frá miðlægri deild, til a’ rannsaka aðstæður.
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.