- Auglýsing -
Facebook og Instagram liggja niðri.
Margt fólk hefur orðið vart við að samfélagsmiðlarnir Instagram og Facebook hafa ekki virkað sem skildi í dag. Bilun veldur því að miðlarnir liggja niðri víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
Þessi er sagt frá á vef Independent.
Þar kemur fram að bilunin í Instagram lýsi sér þannig að sumir fítusar forritsins virka sem skildi á meðan aðrir virka takmarkað eða ekki neitt. Sama virðist eiga við um Facebook.