Miðvikudagur 5. mars, 2025
2.8 C
Reykjavik

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Setter-hundarnir Luna og Stitch hurfu þann 11. desember frá umsjónarfólki sínu á Djúpavogi en þeir sáust þann dag á hlaupum inn í Geithellnadal. Hefur ekkert til þeirra spurst síðan.

Sjá einnig: Enn er tveggja hunda leitað á Austurlandi: „Það er sem jörðin hafi gleypt þá“

Samkvæmt Austurfrétt hafa fjöldi fólks, vinir, ættingjar og jafnvel ókunnugir, frá þeim tíma svipast um eftir hundunum en þeir voru nýkomnir til landsins þegar þeir hurfu. Alls engar ábendingar hafa þó borist um ferðir þeirra síðan en nú, þremur mánuðum síðar, minnka líkurnar meira og meira að þeir finnist.

Sú sem hafði umsjón með hundunum er þeir hurfu, Ólöf Rún Stefánsdóttir, segist enn hafa þá von í brjósti að þeir finnist.

„Það er vissulega merkilegt að enginn hafi orðið þeirra var þessa mánuði sem liðnir eru síðan þeir hurfu. Það eru auðvitað til sögur af hundum af þessari tegund sem hverfa í töluverðan tíma en skila sér þó aftur og í raun er ekki alveg útilokað að þeir hafi getað plumað sig hingað til ef þeir hafa komist í skjól og fundið mat svo vonin er enn í brjósti. En auðvitað dvínar hún því lengra sem frá líður.“

Segist hún hafa íhugað hvort hundarnir hafi hreinlega verið teknir þar sem um verðmæta hunda er að ræða og segir hún dæmi til um að hundum hafi verið stolið fyrir austan og jafnvel rænt og farið með þá um borð í Norrænu á Seyðifirði.

- Auglýsing -

„Ég held að það sé ekki hægt að útiloka slíkt alveg eða hvort einhver hefur tekið þá með sér til einhvers annars staðar á landinu. En ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá, allavega ekki fyrr en eitthvað er vitað um örlög þeirra hvort sem það er dauði upp á fjöllum eða eitthvað annað.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -