Öllu starfsfólki hjá Janusi Endurhæfingu hefur verið sagt upp og verður skellt í lás í sumar samkvæmt yfirlýsingu frá stjórn Janusar. Samkvæmt heimasíðu Janusar fer fram læknisfræðileg starfs- og atvinnuendurhæfing hjá þeim og að markmið starfseminnar sé að aðstoða fólk til að komast á vinnumarkaðinn og fyrirbyggja varanlega örorku.
„Það er þyngra en tárum taki að tilkynna að Janus endurhæfing neyðist til að leggja niður þverfaglega læknisfræðilega heildræna geðendurhæfingu þann 1. júní næstkomandi. Úrræðið er sérhæft fyrir ungt fólk, 18 ára og eldra. Nauðsynlegt fjármagn fæst ekki til að veita endurhæfinguna áfram og af þeim sökum hefur erfið ákvörðun verið tekin. Hópuppsögn, öllu starfsfólki sagt upp,“ en samkvæmt heimsíðu Janusar eru 24 einstaklingar sem missa vinnuna.
Stjórnin segist harma ákvörðun stjórnvalda að hjálpa ekki til með fjármagn því að það sé öllum ljóst að þörfin fyrir sérhæft úrræði, ætlað ungum fullorðnum, sé mikil. Um sé að ræða jaðarsettan og afar viðkvæman hóp.
Góður árangur hefur náðst
„Sérhæfing Janusar endurhæfingar hefur byggst upp á síðastliðnum 25 árum og ómetanleg þekking orðið til. Endurhæfingin er alfarið einstaklingsmiðuð. Hverjum og einum er mætt þar sem hann er staddur. Í endurhæfingunni er ungt fólk með langa sögu um geðræna erfiðleika. Margir eru með taugaþroskaröskun og oft mikla áfallasögu að baki. Þeim er tryggður aðgangur að geðlækni, sálfræðingum, iðjuþjálfum, félagsráðgjöfum og ýmsum fleiri sérhæfðum fagaðilum undir sama þaki. Yfir 55% þeirra sem hafa útskrifast frá okkur síðastliðin 3 ár hafa náð árangri með því að fara í vinnu, nám eða í virka sannanlega atvinnuleit. Tugir ungra fullorðinna eru á biðlista eftir að komast í endurhæfinguna.“
Stjórn Janusar endurhæfingar telur ákvörðun ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda ganga í berhögg við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og að þessi ákvörðun mun leiða til að ómetanleg þekking og endurhæfingargeta fyrir þennan jaðarsetta hóp tapast.
Í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu er greint frá því að þjónusta við þá einstaklinga sem verið hafa í endurhæfingu hjá Janusi samkvæmt samningnum verði áfram tryggð með öðrum leiðum.