Þrír ættliðir á forsíðu arabíska Harper‘s Bazaar.
Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner prýðir forsíðu arabísku útgáfu tímaritsins Harper‘s Bazaar ásamt móður sinni, Kris Jenner, og 17 mánaðar dóttur sinni, Stormi. Þetta er fyrsta forsíðan sem Stormi prýðir.
Í blaðinu er svo að finna glæsilegan myndaþátt og viðtal við Kylie þar sem hún segir meðal annars frá uppvaxtarárum sínum og hvernig hún tæklar móðurhlutverkið.
„Hreinskilnislega sagt þá man ég ekki eftir að hafa haft næði vegna þess að þættirnir okkar hófust þegar ég var níu ára gömul,“ segir Kylie meðal annars í viðtalinu. Þess má geta að raunveruleikaþættirnir Keeping Up With The Kardashian fjalla um fjölskyldu hennar og hafa verið á dagskrá 12 ár.
„Auðvitað koma tímar þar sem manni líður eins og innrás hafi verið gerð inn í einkalíf manns. En ég held að ég hafi lært að draga mig í hlé þegar ég þarf á því að halda.“