Björn Birgisson rassskellir þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Davíð Oddsson í nýrri Facebookfærslu og segir þá kosta ríkissjóð mikið.
Samfélagsrýnirinn gallharði, Björn Birgisson skrifar vinsælar Facebook-færslur daglega þar sem hann ræðir um þau mál sem brenna á þjóðinni. Í nýjustu færslu sinni tekur hann fyrir þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Davíð Oddsson sem hafa verið duglegir undanfarið við að gagnrýna hagræðingatillögur ríkisstjórnarinnar. Hefst færslan á eftirfarandi hátt:
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Davíð Oddsson gera báðir afskaplega lítið úr þeim hagræðingar tillögum almennings sem bárust til ríkisstjórnarinnar.
Sigmundur Davíð í Facebook færslu og Davíð í Moggaleiðara.
Sameiginlegt eiga þessir menn að vera ríkissjóði dýrir.“
Því næst telur Björn upp ástæður þess að þeir félagar séu svo dýrir fyrir ríkiskassann:
„Davíð er á ofur eftirlaunum og ritstýrir ríkisstyrktum snepli sem oftar en ekki er til háborinnar skammar og launar ríkinu styrkina með undirróðri, þvættingi og lygum um ríkisstjórnina og ráðherra hennar.
Sigmundur Davíð er á ráðherralaunum sem formaður hins ríkisstyrkta Miðflokks – á ráðherralaunum fyrir að gera ekki neitt og enn sem fyrr segja þingmenn mér að hann sjáist aldrei í þingsal og mæti afskaplega illa á nefndafundi.“
Að lokum segir Björn að þeir Sigmundur og Davíð ættu að sjá sóma sinn í að þegja.
„Þessir menn ættu að sjá sóma sinn í þegja um sparnaðartillögur almennings og hvernig ríkisstjórnin hyggst vinna úr þeim á komandi mánuðum.
En háttarlag þeirra bendir til þess að þeir séu ekki miklir sómamenn.“