Tónlistarmaðurinn Nasarus hefur sent frá sumarsmellinn Lúsmý sem hann segir fyrsta dægurlag heims sem fjalli um lúsmý. Nasarus opinberaði nýlega tilvist sína á samfélagsmiðlinum Facebook sem nasaflautulistamaður.
Hér má hlýða á þennan skemmtilega smell sem ætti auðveldlega að koma fólki í gott skap. Lagið er aðgengilegt á Facebook-síðu Nasarus.
LÚSMÝ – SUMARSMELLURINN Í ÁRLoksins er komið út hið frábæra íslenska stuðlag "Lúsmý" – fyrsta dægurlag heims sem fjallar um þennan ágenga vágest. Það er hinn geðþekki nasaflautulistamaður Nasarus sem býður þjóðinni í ferðalag með einkennislagi sumarsins 2019 (og líklega 2020 og 2021).Lifið! Njótið! DEILIÐ!
Posted by Nasarus on Sunnudagur, 30. júní 2019
Sjá einnig: Lengi barist fyrir því að nasaflautan verði viðurkennd sem alvöruhljóðfæri