„Mikið er ég sammála og þó fyrr hefði verið segi ég nú bara,” skrifar Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, á Facebook. Hún tekur hér undir Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, sem vill selja Íslandspóst sem fyrst.
„Ég skil ekki af hverju ríkið á flutningafyrirtæki,” skrifar Bryndís og bætir við: „En það er það sem Íslandspóstur raunverulega er.” Alþingi veitti félaginu lán í september 2018 til að bregðast við greiðsluvanda. Alls 500 milljónir króna á 6,2% vöxtum til eins árs. Uppsafnað tap Íslandspóst milli 2013-2018 er 246 milljónir króna samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðanda á rekstri Íslandspósts ohf.
„Ég átta mig á því að það er ekki virk samkeppni í öllum þeim þjónustuþáttum sem Íslandspóstur veitir og auðvitað þurfum við að tryggja dreifingu um land allt.” skrifar Bryndís. Fjárhagsvandi Íslandspósts ohf. stafar meðal annars af því að dreifing pakkasendinga frá útlöndum hefur reynst félaginu kostnaðarsöm. Þá hefur samdráttur í bréfsendingum ekki fengist að fullu bættur með hækkun á gjaldskrá. Heildarfjárfestingar félagsins á árinu 2018 voru of miklar miðað við greiðslugetu þess.
„Það er hægt að gera með útboði þar sem einkaaðilar geta leitað hagkvæmustu og bestu leiðanna til að veita góða þjónustu á þess sviði,” bætir Bryndís við að lokum.
Bjarni vill selja Íslandspóst sem fyrst
„Þegar búið er að koma lagaumgjörð um þessa starfsemi í betra horf, eins og við höfum verið að gera núna, þá sé ekkert því til fyrirstöðu að ríkið selji þennan rekstur,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, m.a. í viðtali við Fréttablaðið. „Hins vegar held ég að það hafi ekki verið aðstæður til þess undanfarin misseri eða ár að hefja undirbúning að slíkri sölu vegna þess hvernig reksturinn hefur gengið.”
„Okkur er það ljóst núna að til dæmis alþjónustukvöðin sem hvílt hefur á fyrirtækinu hefur ekki verið nógu vel fjármögnuð sem birtist meðal annars í nýlegum úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar,“ sagði Bjarni. Ríkisendurskoðandi telur að félagið megi ganga lengra í hagræðingu í starfsemi sinni. Þá megi sameina betur dreifikerfi bréfa og pakka í þéttbýli í stað þess að reka þar tvöfalt dreifikerfi
Aðstoðarkona Bjarna sat í stjórn Íslandspósts
Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sat í stjórn Íslandspósts frá 2014 þar til nú í vor og var lengst af varaformaður stjórnar. Þrátt fyrir það kemur fram í skýrslu ríkisendurskoðunar að fjármálaráðuneytið hafi ítrekað kallað eftir greiningum og upplýsingum um málefni Íslandspósts án þess að greiningarvinnan skilaði sér til ráðuneytisins.
Stjórnendur Íslandspóst tregir til að veita Ríkisendurskoðun svör
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, bendir á í grein sem hún birti í Morgunblaðinu á dögunum að stjórn Íslandspósts hafi dregið að veita Ríkisendurskoðun svör við fyrirspurnum og beinlínis óskað eftir því að Ríkisendurskoðun haldi upplýsingum frá Alþingi.
„Skýrsla ríkisendurskoðunar er vægast sagt svört og því má velta fyrir sér hvort félagið sé heppilegt til samningagerðar við ríkið,“ skrifar Helga Vala. „Öllum var kunnugt um bága fjárhagsstöðu félagsins enda hafði Alþingi samþykkt að lána hinu ógreiðslufæra opinbera hlutafélagi 1.500 milljónir króna á fjárlögum þessa árs til að félagið gæti sinnt sinni grunnskyldu, að koma bréfum og bögglum milli húsa.
Alþingi var hins vegar ekki kunnugt um hvernig á því stóð að félagið stóð svona illa né var það upplýst um hver aðdragandi þess var utan einstaka skýringar stjórnenda. Þá var einnig óljóst hver bar ábyrgð, hvað stjórn félagsins vissi um ástandið og hvað ráðuneytin tvö sem með málefni félagsins fara, fjármálaráðuneytið og samgönguráðuneytið vissu um stöðu félagsins,“ skrifaði hún meðal annars.