- Auglýsing -
David Beckham nýtur nú lífsins á Íslandi en hann er staddur hér á landi ásamt leikstjóranum Guy Ritchie og Björgólfi Thor Björgólfssyni í veiði. Þeir félagar komu einnig til landsins í fyrra í veiði.
Beckham hefur verið duglegur að birta myndir á Instagram í morgun þar sem fylgjendur hans fá innsýn inn í það sem félagarnir eru að bralla. Beckham sýndi þá faratækið sem þeir vinir ferðast á en um stóran Land Rover Defender er að ræða.
„Frábærir dagar,“ skrifar Beckham á Instgram og því má gera ráð fyrir að þeir hafi varið undanförnum dögum hér á landi. Er fram kemur í frétt Vísis þá eru þeir að veiða í Haffjarðará.
Áhugsasamir geta fylgst með Beckham á Instgram.