Fjárlaganefnd leggur til þess að framlög til RÚV verði ekki hækkuð með því móti sem ætlað var þegar þjónustusamningur við Ríkisútvarpið rennur út um næstu mánaðarmót.
„Í núverandi fyrirkomulagi felst, auk samningsbundinna framlaga, innbyggð sjálfvirkni í hækkun sem byggist á fjölgun kennitalna sem stækkar gjaldstofninn,“ segir í áliti nefndar sem liggur til þess að endurskoða það fyrirkomulag „í samhengi við önnur framlög og hækkun þeirra. Við samningsgerðina ber að taka afstöðu til þess hvert samspil tekna af útvarpsgjaldi við önnur framlög verður. Óbreytt fyrirkomulag tryggir fyrirtækinu sjálfkrafa hækkun á fjárlögum umfram aðra ríkisaðila. Það veldur ómarkvissri nálgun í fjárstýringu framlaga meðan á sama tíma eru áætlanir um hækkun framlaga til reksturs annarra fjölmiðla.“
Þá bendir nefnin á á að með annarri fjárstýringu megi því fjármagna að verulegu leyti þau áform, fari svo að þau gangi eftir.