Hátt í 5.600 umsóknir í grunnnám bárust Háskóli Íslands fyrir skólaárið 2019-2020. Það er tæplega 13% aukning frá því í fyrra. Sé horft tvö ár aftur í tímann nemur fjölgunin um 25%. Þetta kemur fram í tilkynningu Háskóla Íslands.
„Umsóknarfjöldinn er umtalsvert meiri en nemur fjölda þeirra sem lýkur stúdentsprófi í ár,” segir í tilkynningunni. Umsóknir í grunn- og framhaldsnám voru hátt í níu þúsund. „þar af eru um 1.200 umsóknir frá erlendum nemendum.”
„Aðsókn í kennaranám eykst töluvert milli ára og sama má segja um umsóknir um nám í hjúkrunarfræði, sálfræði, tilteknar verkfræðigreinar og félagsráðgjöf.” Umsóknirnar skiptast niður á fimm svið innan háskólans.
„Félagsvísindasviði bárust rúmlega þúsund umsóknir. Sem fyrr er viðskiptafræði vinsælasta greinin.” Hátt í 1.700 umsóknir bárust Heilbrigðisvísindasviði. „Inni í þeirri tölu eru rúmlega 420 nemendur sem þreyttu inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands fyrir helgi.” Hugvísindasvið barst um 1.200 umsóknir og er íslenska sem annað mál vinsælasta greinin.
Fjölgunin nemur um 45% milli ára. „Verkfræði- og náttúruvísindasvið fékk tæplega 950 umsóknir.” Vinsælastar eru verkfræði- og tæknifræðigreinar innan sviðsins. „Menntavísindasvið fékk rúmlega 800 umsóknir.” Eins og áður segir hefur vinsældir kennaranáms aukist. „sérstakt þjóðarátak hefur staðið yfir til að laða fólk í kennaranám hérlendis.”