Rútufyrirtæki hafa sum tekið upp á því að afhenda ferðamönnum plasthlífar á skóna.
Einhver fyrirtæki í ferðaþjónustunni hafa tekið upp á því að gefa ferðamönnum skóhlífar úr plasti í rútum. Það er Hjalti Björnsson sem vekur athygli á þessu á Facebook-síðu sinni og í Facebook-hópnum Plokk á Íslandi.
Hjalti tók myndir af hópi ferðamanna stíga út úr rútum við Námaskarð við Mývatn. Eins og sjá má á myndum Hjalta þáðu margir ferðamenn plasthlífarnar áður en gengið var af stað til að skoða svæðið.
Hjalti rakst þá á notaðar plasthlífar sem hafði verið komið fyrir í gjótum í hrauninu á svæðinu.
Hjalti gerði tilraun til að vekja athygli á málinu á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar en færslunni hans var eytt.
„Þetta er með ólíkindum. Ég póstaði þessu inn á Bakland ferðaþjónustunnar en færslunni var kastað út innan við 3 mínútum eftir að hún birtist. Harðlínu ritskoðun þar,“ skrifar Hjalti við færslu sína í hópnum Plokk á Íslandi.