Föstudagur 22. nóvember, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Efnahagstaðan góð og uppbygging heilbrigðiskerfis í fullum gangi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Vinstri grænna, sagði efnahagstöðu í landinu vera góða og að uppbygging heilbrigðiskerfis sé í fullum gangi. Þetta tók hún fram í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. „Stóraukið fjármagn hefur verið lagt í opinberar fjárfestingar sem skilar sér í innviðauppbyggingu um allt land.”

„Fyrir þinginu liggur metnaðarfull heilbrigðisstefna til ársins 2030.” Lilja segir jöfnuð aukinn með lægri greiðsluþáttöku sjúklinga. Hún benti á að komugjald aldraðra og öryrkja hefur verið felld niður. Þá hafi framlag til tannlækninga aldraðra og öryrkja einnig verið stóraukin. „Ég efast um að á öðrum tíma hafi verið jafn metnaðarfull uppbygging í heilbrigðismálum og nú er í tíð ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.”

Lilja sagði ríkisstjórnina vinna að metnaðarfullri samgönguáætlun og þegar lagt aukið fjármagn samgöngur. Það muni leiða til aukins öryggis í umferðinni. Þá nefndi hún Dýrafjarðargöngin sem mikilvægan áfanga í uppbyggingu landsbyggðar. „Góðar samgöngur skipta sköpum fyrir eflingu byggða um allt land og uppbyggingu atvinnulífs, aðgengi að menntun og þjónustu og trú fólks á framtíðina í sinni heimabyggð.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -