Fulltrúar Orkunar okkar kærðu í morgun fundarstjórn forseta til Vinnueftirlitsins. Orkan okkar er baráttuhópur gegn samþykkt þriðja orkupakkans. Á spjallsvæði hópsins hafa nokkrir stuðningsmenn hópsins furðað sig á að vökulög verndi ekki Miðflokksmenn í málþófi.
Nú hagar svo til að nefnda- og þingfundir á Alþingi hafa staðið yfir nánast samfellt sólarhringum saman. Fundað er á víxl í nefndum og í þinginu, hvíldarlaust. Störf Alþingis eru um þessar mundir í andstöðu við Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, einkum IX kafla laganna um hvíldartíma, frídaga og hámarksvinnutíma. Lögboðinn 11 klst. hvíldartími er órafjarri því að vera virtur,” segir yfirlýsingu hópsins.
„ Málið er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að um sjálfan löggjafann er að ræða og með því háttalagi sem hér er vísað til er gefið í skyn að lögum þurfi bara að fylgja þegar hentar. Förum við með bréfi þessu fram á að Vinnueftirlitið og/eða lögreglan bregðist tafarlaust við og stöðvi yfirstandandi lögbrot.“
Haraldur Ólafsson og Birgir Steingrímsson afhentu Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur forstjóra Vinnueftirlitsins kæruna fyrir hönd Orkunnar okkar.