Næsta vetur verður ekkert skólahald í Grímsey en það var nýlega samþykkt í Fræðsluráði Akureyrarbæjar. Fyrir liggur að sú ákvörðun verði endurskoðuð fyrir næsta skólaár.
Í vetur hafa þrír nemendur stundað nám við grunnskólann og tvö börn verið á leikskólanum. Á vef Vikudags segir Karen Nótt Halldórsdóttir, skólastjóri í Grímseyjarskóla, að ein fjölskylda sé að flytja frá eynni og eins og staðan sé í dag verði engir nemendur næsta vetur. Hún bætir við að þetta verði vonandi ekki til frambúðar enda sé húsnæðið til staðar og öll námsgögn. „Við Grímseyingar vonum það besta og að skólaganga muni hefjast að nýju,“ segir Karen á vef Vikudags.
Akureyrarkaupstaður og Grímseyjarhreppur voru sameinuð árið 2009 eftir að sameining sveitarfélaganna var samþykkt í kosningum sem fram fóru samhliða alþingiskosningunum. Sameiningin var samþykkt með 69,3% atkvæða á Akureyri og 88% atkvæða í Grímsey.