Stóri plokkdagurinn svokallaði verður haldinn á sunnudaginn en það er hópurinn „Plokk á Íslandi“ sem stendur fyrir deginum.
Í ár mun hópurinn beina sjónum sínum að Reykjanesbrautinni, Vesturlandsveginum og umhverfi stærri umferðaræða landsins. Ferðafélag Íslands hefur slegist í hóp skipuleggjenda en í félaginu eru margir öflugir plokkarar. Þá mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, taka þátt í deginum er fram kemur í tilkynningu um Stóra plokkdaginn.
Þess má geta að hópurinn Plokk á Íslandi stóð fyrir plokkdegi í fyrra með góðum árangri.
Öllum er velkomið að taka þátt í Stóra plokkdeginum. Plokkurum er bent á að nota myllumerkið #plokk19 á samfélagsmiðlum.
Hér er þá listi yfir þau svæði sem Plokk á Íslandi hefur skipulagt plokk á:
- Reykjanesbær svæði 1-5, ræst af planinu hjá Bónus á Fitjum.
- Vogar svæði 1-3, ræst við bílastæði brúna undir brautina að Vogum.
- Hafnarfjörður svæði 1-3, ræst af bílastæðinu hjá N1 Lækjargötu.
- Garðabær svæði 1-2, ræst af bílastæði IKEA.
- Kópavogur svæði 1-3, ræst af bílastæði Smáralindar.
- Reykjavík Elliðaárdalur og Fossvogs svæði 1-3, ræst af bílastæði Sambíóanna.
- Reykjavík – Stórhöfði og Árbær 1-3, ræst af bílastæðinu við Select og Ölgerðina.
- Reykjavík – Grafarvogur Grafarholt 1-3, ræst af bílastæðinu hjá Húsasmiðjunni.
- Mosfellsbær 1-3, ræst af bílastæðinu við N1.