Ragnheiður Linnet, blaðakona Mannlífs, er tilnefnd til blaðamannaverðlaunanna fyrir viðtal ársins vegna viðtals hennar við Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju plastbarkaþegans, Andemariam Beyene.
Í viðtalinu segir Merhawit frá aðdraganda ígræðslunnar og hvernig líf fjölskyldunnar umturnaðist eftir plastbarkamálið svokallaða sem er eitt af helstu hneykslismálum í læknavísindum síðustu áratugi.
Ragnheiður fylgdi málinu eftir og fjallaði síðar um það að Merhawit fær ekki greiddar bætur vegna málsins. „Þetta er mér næstum ofviða ofan á allt sem hefur gengið á. Ef Andemariam hefði farist í bílslysi, hefði allt verið mun auðveldara. Þá hefðu hlutirnir legið fyrir, en þetta mál hefur elt mig í fimm ár og ætlar engan enda að taka. Ég get ekki lýst því hvað ég er vonsvikin,“ sagði Merhawit.
Hér er hægt að lesa viðtalið í heild sinni: Ekkja plastbarkaþegans rýfur þögnina
Sjá einnig: Ekkja plastbarkaþegans fær ekki greiddar bætur
Sjá einnig: Plastbarkamálið: Paolo Macchiarini, snillingur sem sveifst einskis
Á vef Blaðamannafélags Íslands má skoða allar tilnefningar til blaðamannaverðlauna fyrir árið 2018. Þrír eru tilnefndir í hverjum flokki verðlaunanna.
Mynd / Árni Torfason