Keramikverk eftir listakonuna Patty Spyrakos hvarf úr listagalleríinu Gallery Port.
„Þessi skúlptúr eftir Patty Spyrakos hvarf úr Gallery Port á tónleikum hjá okkur á fimmtudaginn í síðustu viku,“ segir í færslu sem birt var á Facebook-síðu Gallery Port á föstudaginn. Listaverkið hefur ekki enn komið í leitirnar.
Aðspurður hvenær uppgötvaðist að verkið væri horfið segir listamaðurinn Árni Már, einn stofnandi Gallery Port: „Það kom bara í ljós daginn eftir þegar við mættum til vinnu. Verkið var á hillu uppi á vegg ásamt slatta af öðrum verkum sem við ýmist eigum eða eru í umboðssölu hjá okkur.“
Verkið var á hillu uppi á vegg ásamt slatta af öðrum verkum.
Stolna verkið var hluti af sýningu Pattyar og eiginmanns hennar, Baldurs Helgasonar, en þau eru búsett í Chicago. „Þetta verk ásamt fleiri verkum af sýningu þeirra voru hjá okkur í umboðssölu.“
Sá sem tók verkið eða veit hvar það er niðurkomið getur skilað því án allra eftirmála að sögn Árna. „Það verða engir eftirmálar,“ segir hann. Árni bendir þá á að hægt sé að skila verkinu í verslun Maclands, Laugavegi 23, ef viðkomandi þykir það betra.