- Auglýsing -
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, greindi frá í viðtali í Morgunkaffinu á Rás 2 í morgun að Dorrit Moussaieff hafi látið taka sýni úr hundi sínum Sámi í þeim tilgangi að láta klóna hann síðar meir. Hér koma nokkrar staðreyndir um hundinn Sám sem er Dorrit ómissandi.
- Sámur er 11 ára gamall.
- Sámur er blanda af íslenskum og þýskum hundi.
- Sámur kemur frá Smáratúni í Fljótshlíð.
- Sámur kemur undan tík sem Dorrit sá í heimsókn í Fljótshlíð árið 2008. Hún heillaðist af tíkinni og Ólafur fór þá í að útvega Dorrit hvolp undan tíkinni.
- Ólafur gaf Dorrit Sám um sumarið 2008.
- Sámur var nefndur eftir Bessastaðar-Sám sem Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti Íslands, átti á meðan hann bjó á Bessastöðum.
- Það er Dorrit sem á Sám en Ólafur hefur tekið þátt í þjálfun hundsins. Ólafur keypti til dæmis nokkrar bækur um hundahald þegar Sámur kom inn í fjölskylduna.
- Sámi hefur verið lýst sem afar hlýðnum og húsbóndahollum.
- Dorrit reynir að taka Sám með sér hvert sem hún fer.
- Sámur hefur borið merki Björgunarhundasveitar Íslands frá árinu 2014. Hann er þó ekki ekki sérstaklega þjálfaður björgunarhundur.
- Dorrit leyfði Sámi að synda í fyrsta sinn árið 2010 á Stokkseyri.
- Sýni hafa verið tekin úr Sámi og send til Bandaríkjanna svo hægt verði að klóna hann eftir að hann drepst.