Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands er snúinn aftur til vinnu í höfuðstöðvar ríkisstjórnar Bretlands við Downingstræti 10. Johnson hefur undanfarið verið í veikindaleyfi vegna COVID-19 smits en hann greindist með sjúkdóminn fyrir mánuði. Johnson þurfti að dvelja á gjörgæsludeild í þrjá daga vegna veikindanna.
Stór verkefni bíða Johnson en taka þarf ákvarðanir um næstu aðgerðir Bretlands vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur COVID-19.
Johnson hefur verið gagnrýndur fyrir að vera lengi að taka við sér þegar veiran hóf að breiðast út í Bretlandi. Núna er hann undir pressu að aflétta ýmsum takmörkunum sem hafa verið settar þar í landi.
Heilbrigðisráðherra Bretlands Edward Argar hefur þó sagt að nú sé ekki rétti tíminn til að slaka á þrátt fyrir að fólk sé orðið óþreyjufullt.
Staðfest smit í Bretlandi eru orðin rúmlega 124 þúsund og staðfest dauðsföll af völdum COVID-19 eru 20.795 samkvæmt upplýsingum á vef Johns Hopkins-háskólans en óttast er að tala látinna í Bretlandi sé mun hærri.
Sjá einnig: Boris Johnson enn á gjörgæslu og gefið súrefni