Kvikan, auðlinda- og menningarhús Grindavíkur heldur rafræna myndlistarsýningu og er öllum íbúum og velunnurum Grindavíkur velkomið að taka þátt í sýningunni.
Hún fer þannig fram að allir áhugasamir skapa listaverk heima hjá sér og taka svo af því mynd og senda inn. Myndirnar verða til sýnis á heimasíðu Grindavíkurbæjar og á Facebook-síðu Kvikunnar.
Listamenn eru hvattir til að merkja sér myndirnar á Facebook með því að „tagga sig“ á myndinni.
Þema sýningarinnar er frjálst en tilvalið að nota nærumhverfið til þess að fá innblástur og skapa verkin.
Tekið er við myndum á netfangið [email protected] eða í Facebook skilaboðum til Kvikunnar fram til hádegis 31. Apríl. Sýningin hefst svo 1. maí.
Merkja skal myndir með nafni listamanns og aldri og einnig er gaman ef listaverkið fær nafn.
Eftir að sýningin hefst mun besta myndin vera valin og verður hún sett á póstkort. Póstkortin verður svo hægt að kaupa í Kvikunni í sumar.
Búið er að aflýsa árlegri bæjarhátíð grindvíkinga, Sjóaranum síkáta, sem fer fram fyrstu helgina í júní.
Sjá einnig: Sjóaranum síkáta aflýst