Tónlistarkonan Greta Salóme setur íbúðina sína í Mosfellsbæ á sölu.
„Gullmolinn okkar kominn á sölu,“ skrifar Greta Salóme á Facebook. „Endalaust af góðum stundum, stúdíótímum, heimagymmi í Covid, góðum stundum á pallinum og hlátursköstum sem eru buin að eiga sér stað þarna. Fyrir utan svona 1000 klukkutíma í framkvæmdir og dúll.“
Á fasteignavef mbl.is er íbúðinni lýst sem einstaklega fallegri 101,7 fm 3ja herbergja íbúð í Mosfellsbæ með sér inngangi og stórum afar vönduðum afgirtum palli.
Fram kemur að nýlega sé búið að taka íbúðina í gegn á afar smekklegan máta, þar sem engu hefur verið til sparað.
„Leitar að góðum eigendum með góðan húmor,“ skrifar Greta Salóme í umræddri færslu, „og mikla ást.“
Myndir / Facebook og 450 Fasteignasala