- Auglýsing -
Hér eru nokkur góð sparnaðarráð sem eiga við um allar veislur.
- Ef þið leigið sal, athugið hvort ekki borgi sig að kaupa veitingar af t.d. hótelsal því þar fylgja starfsmenn og dúkar.
- Matarmiklar súpur og heimabakað brauð er snilld í hádegisveisluna og hvorki flókið né dýrt að útbúa.
- Svo er um að gera að fá fjölskylduna í lið með sér að baka nokkrar kökur í eftirrétt.
- Ef þú treystir þér ekki í að útbúa kransaköku er Rice Krispies-kransakaka einfaldari byrjun og börnin verða hæstánægð.