Linsubaunir eru hráefni sem brýtur upp á marga möguleika ásamt því að vera meinhollar og seðjandi. Ólíkt þurrkuðum baunum þarf ekki að láta linsubaunirnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leynast smásteinar í pokanum.
Linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýu
gerir u.þ.b. 20 bollur
200 g brúnar eða rauðar linsubaunir
½ laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 msk. tahini-sesamsmjör
2 tsk. malað kummin
2 tsk. kóríanderduft
½ tsk. salt
1 msk. sítrónusafi
2 msk. fersk mynta, söxuð
2 msk. ferskt kóríander, saxaður
Hitið ofninn í 180°C. Sjóðið linsubaunirnar í 1 lítra af vatni í 20-30 mínútur eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Hellið vatninu frá og setjið til hliðar.
Steikið lauk og hvítlauk upp úr ólífuolíu þar til hann er glær og mjúkur. Setjið til hliðar og látið kólna.
Setjið linsubaunirnar í matvinnsluvél og maukið í stuttum slögum þar til þær maukast gróflega. Setjið restina af hráefninu út í og maukið í stuttum slögum þar til það hefur myndað gróftmauk (ekki hafa maukið of fíngert).
Bragðbætið með salti og kryddi ef þarf.
Mótið kúlur og raðið á ofnplötu með bökunarpappír. Kælið í 15 mínútur. Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til bollurnar eru eldaðar í gegn og farnar að brúnast. Berið fram með kryddaðri jógúrtídýfu.
Krydduð jógúrtídýfa:
1 dl grísk jógúrt
½ tsk. malað kummin
salt og pipar
Hrærið saman jógúrt og kummin, bragðbætið með salti og pipar.
Umsjón / Nanna Teitsdóttir
Stílisti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Myndir/ Hákon Davíð Björnsson