Hér kemur uppskrift að dásamlegum brioche-bollum með súkkulaðifyllingu en brioche er franskt brauð með óvenjulega miklu magni af eggjum og smjöri á móti mjöli í uppskriftinni. Útkoman verður létt og mjúkt brauð en með stökkri skorpu.
Bollur með súkkulaðifyllingu
12-14 stk.
1 uppskrift Brioche-deig (sjá uppskrift hérna)
200 g Nutella
egg til að pensla með
40 g heslihnetur, saxaðar
Skiptið deiginu í 12-14 bita. Fletjið hvern bita út í hring u.þ.b. 12 cm í þvermál.
Setjið fulla teskeið af Nutella í miðjuna á deiginu, vætið brúnirnar með vatni og ljúkið deiginu utan um Nutella-fyllinguna.
Veltið deigkúlunni á milli handanna og passið að loka vel svo fyllingin leki ekki út. Setjið í múffuform og látið bíða á hlýjum stað í 30-60mín.
Hitið ofninn í 180°C. Penslið bollurnar með sundurslegnu eggi og stráið heslihnetum ofan á. Bakið í miðjum ofni í 12-14 mín.
Sjá einnig: Ljúffengt vínabrauð með apríkósum
Stílisti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Myndir / Kristinn Magnússon