Þessa fallegu köku er fljótlegt að gera og hana er tilvalið að gera á hátíðisdögum. Er þá ekki upplagt að bjóða upp á hana á þjóðhátíðardaginn?
Jarðarberjakaka
fyrir 10-12
Hér er uppskrift að gómsætri jarðarberjaköku sem er fljótleg og þægileg. Tilvalið er að nota gómsætu íslensku jarðarberin sem fást núna.
200 g marsípan (Ren frá Marsipan)
200 g mjúkt smjör
200 g sykur
3 egg
100 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
2 tsk. sítrónubörkur
1 tsk. vanilludropar
Ofan á:
4-5 dl rjómi, þeyttur
400 g jarðarber
2 msk. flórsykur
Hitið ofninn í 160°C. Rífið marsípanið niður á rifjárni og hrærið saman við smjör og sykur í hrærivél. Bætið eggjum út í, einu í senn, og síðast hveiti, lyftidufti, sítrónuberki og vanilludropum. Setjið deigið í 28 cm breitt smjörpappírsklætt smellumót og bakið í 30-40 mín.
Umsjón / Sigríður Björk Bragadóttir
Stílisti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Myndir / Sigtryggur Ari Jóhannsson