Hér er ekki notað hefðbundið ferkantað lasagna-form sem gefur réttinum grófara og frjálslegra yfirbragð. Lasagna-blöðin eru ekki öll ofan í sósunni og brúnast flví aðeins í endanna og verða stökk.
fyrir 4-6
4 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 rauðlaukur, saxa›ður
800 g ferskir kirsuberjatómatar,
skornir gróft
3 msk. balsamedik
2 msk. kaldpressuð ólífuolía
sjávarsalt og nýmala.ur pipar
hnefafylli fersk basilíka
500 g spínat
bragðbætið með sjávarsalti og nýmöluðum pipar
9 þurrkaðar heilhveiti lasagnaplötur
100 g rifinn mozzarella-ostur
200 g haloumi-ostur flunnt skorinn
4-5 heilir kirsuberjatómatar
tómatar, má sleppa
Hitið ofninn í 180°C. Léttsteikið laukinn í potti í 1 msk. af olíu,þar til hann verður glær og bætið þá
tómötum, ediki, restinni af olíu, salti og pipar saman við.
Sjóðið allt í 20 mínútur eða þar til tómatarnir eru orðnir vel mjúkir og maukaðir. Sjóðið lasagna-plöturnar á meðan tómatarnir malla í 4-5 mín. í léttsöltu vatni.
Setjið til hliðar. Látið basilíku og spínat saman við tómatana og hrærið vel í þar til allt hefur samlagast.
Setjið 3 lasagna-plötur í botninn á því formi sem þið ætlið að nota og hellið 1/3 af tómatblöndunni yfir og 1/3 af mozzarella-ostinum.
Endurtakið þetta tvisvar.
Skerið haloumi-ostinn í sneiðar og raðið ofan á efsta lagið ásamt 4-5 heilum kirstuberjatómötum. Bakið í 20-25 mínútur eða þar til rétturinn er orðinn fallega brúnn á lit og er eldaður í gegn.
Berið fram með góðu brauði og basilíkupestói.