- Auglýsing -
Eitt af því sem margir tengja við jólahátíðina er heitt súkkulaði. Þá er gaman að bjóða upp á kakó með ekta súkkulaði og þeyttum rjóma. Hér er uppskrift að krydduðu kakói fyrir þá sem vilja prófa slíkt og nokkrar tillögur að annars konar bragðefni.
Kryddað kakó
fyrir 4
½ lítri nýmjólk
2 dl vatn
150 g súkkulaði 56 %
1 msk. sykur
1/8 tsk. múskat
½ tsk. kanill
1 kanilstöng
½ tsk. kardimommuduft
Hitið mjólk og vatn að suðu og bætið síðan restinni af hráefninu saman við. Hrærið rólega í blöndunni þar til súkkulaðið hefur bráðnað og kryddið hefur samlagast. Til þess að fá meira bragð af kakóinu er gott að leyfa því að malla rólega á vægum hita í u.þ.b. 20 mínútur. Berið fram með þeyttum rjóma.
Tillögur að annars konar bragðefni og þá er kryddinu sleppt úr grunnuppskriftinni
- Piparmyntudropar
- Kanill og ferskur chili-pipar
- Hnetusmjör
- Karamellusósa eða heilar karamellur látnar bráðna með súkkulaðinu
- Smávegis skvetta af rjómalíkjör, t.d. Bayley‘s eða Amarula
Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir