- Auglýsing -
ORÐRÓMUR Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi hefur leitað stuðnings víða um land undanfarið með misjöfnum árangri.
Eitthvað hljóp þó á snærið hjá honum á dögunum þegar Sturla Jónsson, þaulreyndur frambjóðandi og vörubílstjóri, lýsti andstöðu sinni við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands.
„Hann er ekki minn forseti ! Takið eftir klæðnaðinum frá hvirfli til ilja !! Berið saman Klæðnað Ólafs Ragnarsgrímssonar,“ segir í færslu Sturlu sem styður „Franklín“.