- Auglýsing -
ORÐRÓMUR Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi hefur tekið upp nýjan og harðari stíl í kosningabaráttu sinni.
Hann sakar Elizu Reid forsetafrú um að nýta sér launaða stöðu hjá Íslandsstofu til að ýta áfram framboði eiginmanns síns. Þá telur hann ósanngjarnt að forsetinn sé sjálfur sýnilegur í auglýsingum.
Frambjóðandinn sem mælist með 10 prósenta fylgi klykkti út í beinni útsendingu á Facebook með því að fullyrða að Guðni réði yfir fimm kosningamaskínum.
Einhverjir merkja örvæntingu í máli hans …