- Auglýsing -
Varað er við neyslu á hlaupi sem nefnist ABC Jelly cups, vegna köfnunarhættu. Skýringin er sú að hlaupið inniheldur hleypiefnið E-410 karbógúmmí sem er afar seigt og getur valdið köfnun. Matvælastofnun hefur sent út tilkynningu vegna þessa og munu þau fyrirtæki sem flytja sælgætið inn innkalla það í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar-og Kópavogssvæðis.
Ýmis vöruheiti eru undir vörumerkinu ABC Jelly cups og geta neytendur skilað sælgætinu aftur í verslunina gegn endurgreiðslu.