Play hefur trygggt sér nægilegt fjármagn til að hefja flug. Fyrstu flugferðir félagsins eru áætlaðar í haust.
„Ef COVID þróast í jákvæða átt þá erum við að horfa á að byrja áætlunarflug okkar í október,“ segir Skúli Skúlason, stjórnarformaður Play í viðtali í Viðskiptablaðinu í dag.
Haft er eftir Skúla að mikill tími fari í viðræður við flugvélaleigusala, hvaða kjör og hvers konar vélar séu í boði og hvernig þær passi inn í samsetningu á framtíðarflotanum. „Enn er alveg óljóst og fer eftir því hvernig staðan verður, hvort við byrjum með eina eða fleiri vélar, enda erfitt að taka ákvarðanir með alla þessa óvissuþætti fyrir framan sig,“ segir Skúli og getur þess að Play geti verið komið með sex til átta vélar næsta vor.
Í dag er Play með 36 starfsmenn í vinnu og kostar rekstur fyrirtækisins í dag um 45 milljónir á mánuði. „Við erum að brenna á bilinu 200-300 þúsund evrum á mánuði í reksturinn núna, sem við getum staðið vel undir þangað til við sjáum tekjustreymi byrja vonandi í haust. Við erum með aðgang að nægri fjármögnun til að fara í loftið,“ segir Skúli.