Hvað verður um gömul dekk? Þeim er fargað eða, eins og við vonandi sjáum meira af í framtíðinni, þau eru endurunnin. Í samfélagsskýrslu N1 fyrir árið 2019 kemur fram að félagið sóli eldri dekk (nýtt slitlag sett á) og þannig má nýta þau lengur.
Á Akureyri starfrækir N1 sólningarverksmiðju og þar voru á síðasta ári sólaðir/endurunnir 3.195 vörubíla- og vinnuvélahjólbarðar. Það dekkjakurl sem fellur til við sólninguna er nýtt í ýmislegt og má þar nefna að búnar eru til úr því gúmmímottur. Annað sem orðið hefur til úr dekkjakurlinu eru millibobbingjalengjur. Í þetta voru notuð tæp tíu tonn af kurli.
Kolefnisfótsporið minnkað um 578.295 kíló
Í skýrslunni kemur fram að með því að sóla/endurvinna þessi 3.195 dekk hafi tekist að minnka kolefnisfótspor félagsins um 578.295 kg og sé þá ótalinn eldsneytissparnaðurinn við innflutning á nýjum hjólbörðum sem hefði komið til ef þeir hefðu ekki verið sólaðir. Þá megi líka taka til hráefnissparnað (gúmmí, strigi og járn) sem nemur 172.530 kg og olíusparnað upp á 223.650 lítra.
Ennfremur kemur þar fram að á síðasta ári sendi N1 183 Michelin vörubílabelgi úr landi til endurvinnslu hjá Michelin sem minnkar kolefnisfótsporin um 33.123 kg og er hráefnissparnaður 9.882 kg og olíusparnaður 2.810 lítrar.