- Auglýsing -
Jarðskjálfti upp a 5,6 mældist klukkan 15:05 í dag, upptök skjálftans voru um 20 kílómetra norðaustur af Siglufirði.
Jarðskjálftahrina hófst í gær og um 450 skjálftar hafa mælst á svæðinu síðan þá en nokkuð margir hafa mælst yfir 3 stig. Stærstu skjálftarnir fundust á Siglufirði, Ólafsfirði, Akureyri, Hofsósi og víðar.
Í færslu almannavarna er fólk sem býr á jarðskjálftasvæðunum innst á að fara yfir varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta. Frekari upplýsingar má finna inn á vef almannavarna.