Grillaðir bananar í möndluhjúp með sykurpúðum og súkkulaði. Fullkomið í bústaðinn.
fyrir 4
100 g möndluflögur, ristaðar og muldar
200 g eplakökurasp eða brauðrasp
2 tsk. kanill
1 tsk. sykur
¼ tsk. salt
4 bananar, án hýðis
4 msk. hlynsíróp, má nota annað síróp
3 msk. olía
100 g súkkulaðidropar eða annað súkkulaði
litlir sykurpúðar, eða stórir skornir í bita, eftir smekk
Blandið möndluflögum, eplakökuraspi, kanil, sykri og salti saman á disk. Stingið nokkrum súkkulaðidropum í bananana og penslið þá með sírópinu, veltið þeim svo vel upp úr möndluraspinu, þannig að blandan hylji þá vel.
Penslið með olíu og grillið á öllum hliðum, snúið þegar þeir hafa náð góðum lit og hjúpurinn er orðin brúnleitur. Þegar síðasta hlið bananans er grilluð raðið einsmörgum súkkulaðidropum ofan á og hægt er og lokið grillinu augnalik en ekki of lengi eða þar til súkkulaðið festist við bananann og bráðnar aðeins.