- Auglýsing -
Nafnið Múlaþing fékk flest atkvæði, bæði í fyrsta sæti og samanlagt hjá íbúum Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem tóku þátt í nafnakönnun á nýtt sameinað sveitarfélag samhliða forsetakosningunum á laugardag.
62% þeirra sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði, eða 2232 af 3618. Öllum íbúum sveitarfélaganna 16 ára og eldri var gefinn kostur á að taka þátt í valinu.
Frekari upplýsingar um kosninguna má lesa á Austurfrétt.is.