- Auglýsing -
Dropinn hannaður af Arne Jacobsen fyrir Fritz Hansen hefur nú verið framleiddur í nýjum litum en hann kom fyrst á markað árið 1958.
Fagrir, dempaðir tónar einkenna nýju stólana og var hugsunin á bak við litavalið að hægt væri að blanda öllum litum saman í borðstofuna.
Lítill stóll með stóran persónuleika sem hefur fágað yfirbragð þar sem mjúkar og hreinar línur sameinast í einstakri hönnun stólsins.