Fimmtudagur 12. desember, 2024
1.8 C
Reykjavik

Persónuverndarstefna Birtíngs (Birtíngur)

  • Birtíngur leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi persónuupplýsinga.
  • Birtíngur sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
  • Stefna Birtíngs er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þá þjónustu sem fyrirtækinu ber að veita viðskiptavinum.
  • Birtíngur ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um viðskiptavini á óábyrgan, óöruggan eða ólöglegan hátt.
  • Allar upplýsingar sem viðskiptavinir Birtíngs láta fyrirtækinu í té eða sem Birtíngur sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila eru eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.

Persónuupplýsingarnar

Við notum persónuupplýsingar þínar ekki í neinum öðrum tilgangi en þeirra er aflað.

Við áskiljum okkur rétt til að deila persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum sem koma að tæknilegu viðhaldi eða greiðsluþjónustu (slíkir aðilar kallast héðan í frá einu nafni “þriðju aðilar”) að því marki sem nauðsynlegt er svo við getum innt þjónustuna af hendi. Við tryggjum að slíkir þriðju aðilar viðhafi fullan trúnað.

Viðskiptavinir Birtíngs (en ekki Birtíngur) eiga sínar persónuupplýsingar og hafa einir aðgang að þeim ásamt starfsfólki Birtíngs.

Tölfræðilegar samantektir

Birtíngur áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi fyrirtækisins, til dæmis fyrir ársskýrslu Birtíngs og á fundum á vegum fyrirtækisins.

Vefhegðun

Þegar notendur heimsækja vefsvæði solning.is og Mínar síður fyrir söluaðila Birtíngs, kann Birtíngur að safna tæknilegum upplýsingum um notkun þeirra, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á solning.is, tímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra.

Upplýsingar til 3. aðila

Birtíngur mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar viðskiptavina Birtíngs til þriðja aðila nema fyrirtækinu sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt beiðni viðskiptavinar.

Bókhaldsgögn

Bókhaldsgögn eru geymd í samræmi við lög og reglur um færslu bókhalds og varðveislu þess.  Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt.

Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Birtíngur enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Birtíngs.

Birtíngur ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).

Lög og lögsaga

Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.

Breytingar

Birtíngur áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu okkar.

Tengiliðaupplýsingar

Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu Birtíngs skaltu hafa samband við okkur hér:  Skrifstofa Birtíngs, Síðumúli 28, 108 Reykjavík, 515-5500, [email protected]

Birtíngur leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem viðskiptavinir treysta okkur fyrir.