Enn eru brögð að því að brotist sé inn í bílaleigubíla í Reykjanesbæ og stolið úr þeim verðmætum eins og segir í tilkynningu frá lögreglu. Nýverið var lögreglunni á Suðurnesjum tilkynnt um þjófnað á fjarlægðarskynjurum úr 32 bílaleigubílum í eigu einnar bílaleigu. Áætlað verðmæti hvers skynjara er um 250 þúsund krónur. Tjón fyrirtækisins vegna þessa er því umtalsvert.
Málið er í rannsókn.
Lögregla áréttar enn að forráðamenn og eigendur bílaleiga geymi bifreiðir fyrirtækjanna ekki á fáförnum stöðum þar sem eftirlitsmyndavélar eru ekki til staðar.