- Auglýsing -
Karlmaður á sjötugsaldri var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sjö daga áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Var það gert að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á bruna á Bræðraborgarstíg í síðustu viku.
Rannsókninni miðar vel áfram að sögn lögreglu.