Lögreglan hvetur fólk sem hyggur á útivist á Esjunni að hafa sérstakan vara á sér og fara gætilega því laust grjót geti verið á svæðinu.
Göngufólk í Esjunni varð vart við miklar drunur og grjóthrun í fjallinu á ellefta tímanum í gær. Féllu stór grjót úr klettabeltinu austan við Þverfellshornið og beint yfir göngustíginn og náðu tvær konur, sem voru á svæðinu, naumlega að forða sér undan skriðunni, sem var nokkuð stór. Hlaut önnur konan minniháttar meiðsl.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar er jafnframt tekið fram að skriðan hafi fallið á gönguleiðina sem er hægra megin, eða austar í Esjunni, sem er lengri leiðin, austan við Þverfellshornið, frekar ofarlega ofan við Mógilsá.
Er fólk sem hyggur á útivist á Esjunni hvatt til að hafa sérstakan vara á sér og fara gætilega því það gæti enn verið laust grjót á svæðinu.