Linda Pétursdóttir ræðir Miss World keppnina og fyrirsætutímabilið við fjölmiðlamanninn Sölva Tryggvason í nýjasta podcasti Sölva.
„Ég myndi alveg leyfa dóttur minni að keppa í Miss World, en hitt er ég ekki svo viss um. Það er allt annar lífsstíll og allt of mikið í boði,” segir Linda hreinskilin, þegar Sölvi spyr hvort hún frekar leyfa dóttur sinni að starfa sem fyrirsæta eða taka þátt í Miss World keppninni.
Í viðtalinu rifjar Linda meðal annars upp hversu sérstök reynsla það hafi verið að starfa sem ung fyrirsæta. Henni hafi fundist erfitt að starfa sem ung kona í bransanum í Milanó á Ítalíu á þessum tíma. „Þú stendur í einhverjum þröngum strætó og þeim finnst bara mjög eðlilegt að klipa þig í rassinn.”
Þá segir hún Tokyo hafi verið skrýtnasta staðurinn vegna þess hversu mikið hafi verið í boði fyrir hana sem unga konu, en vill þó ekki fara nánar út í þá sálma. „Þetta er ekki bannað innan 16, þannig að ég ætla ekki að segja þér sögur þaðan,” segir Linda við Sölva.
Viðtal Sölva við Lindu má sjá hér.