Formaður Flugfreyjufélags Íslands segist vera bjarstýn á að niðurstaða náist í kjaraviðræðum félagsins og Icelandair. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara næstkomandi föstudag.
„Nú eru félagsmenn búnir að láta í ljós afstöðu sína og þetta er bara staðan,“ segir Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, í samtali við Mannlíf um þau tíðindi að meirihluti félagsmanna FFÍ hafi fyrir skemmstu fellt kjarasamninginn sem samninganefndir félagsins og Icelandair skrifuðu undir þann 25. júní síðastliðinn.
Spurð hvort það komi á óvart að svona mikill meirihluti hafi fellt samninginn segir Guðlaug að stjórn félagsins hafi staðið fyrir fjölda kynningarfunda síðan samninganefndir félagsins og Icelandair undirrituðu hann 25. júní. Hún hafi því haft góða innsýn í skoðanir félagsmanna.
„Í nýja samningnum var mikil krafa um hagræðingar. Það má segja að félagsmenn séu með þessu að segja að þeim hafi fundist of langt gengið.“
„Já, við erum búin að vera með mikið af kynningarfundum frá því að samningurinn var undirritaður þannig að ég er með puttann á púlsinum hvað varðar skoðanir félagsmanna. Þegar undirritaður samningur lá fyrir settum við þetta í hendur félagsmanna og þeir hafa nú tjáð sig – með frekar afgerandi hætti,“ segir hún, en kjörsókn var 85,3 prósent og greiddu 72,65 prósent atkvæði gegn samningnum, en 26,46 prósent með samningnum.
Hvað var það sem stóð því helst fyrir þrifum að samningurinn yrði samþykktur? „Í nýja samningnum var mikil krafa um hagræðingar. Það má segja að félagsmenn séu með þessu að segja að þeim hafi fundist of langt gengið,“ svarar hún, en segist ekki geta tjáð sig frekar um það.
Búið sé að boða til fundar hjá ríkissáttasemjara næstkomandi föstudag. „Við munum ganga aftur til fundar hjá ríkissáttasemjara og leggjum okkur að fram við að ná samningi,“ segir hún.
Ertu bjartsýn á framhaldið? „Ég er alltaf bjartsýn. Það þýðir ekkert annað.“